Vegir liggja til allra átta
08.04.2008 01:39:50 / Þóra Karítas

hjartakitl

byrjuð að blogga aftur á www.imogyn.blog.is



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 10:17:18 / Þóra Karítas

Stungin af til London

Hæ allir,

Stakk af til London. Kem aftur 19. júlí. Finnst spennandi að vera komin aftur en þarf að vera dugleg að redda mér vinnu til að rétta úr kútnum og geta haldið áfram að vera hérna.

Ég blogga kannski aðeins á www.myspace.com/thorakaritas

og jafnvel aðeins hér líka ef ég næ að tengja mína tölvu bráðum svo að íslenska stafsetningin blívi.

Endilega verið í bandi. Elsku Björk ég verð að sjá snúllurnar þínar þegar ég kem aftur í Júlí.

Vona að allt gangi vel hjá öllum.

Love

Þóra


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 13:28:57 / Þóra Karítas

New york city hvað??? partýið er hér!!!

Hæ allir,

Vona að draumurinn um endurfæðinguna hafi verið táknrænn. Hef amk ekki upplifað jafnskemmtilega daga og síðustu fimm í Reykjavík síðan ég flutti aftur heim. John bekkjarbróðir minn frá Webber var hér ásamt leikhópnum sínum á listahátíð. Þá eru fimm bekkjarsystkini búin að koma á Íslandið góða og alltaf jafngaman að fá London leiklistarlífið hingað heim. Borgin breyttist úr grárri hversdagsborg yfir í mega cool partý place með rjósrauðri miðnætursól og trylltum sjó. Gaman hvað lífið getur átt það til að lifna við.

Annars bara á jörðinni eins og alltaf -

Ye right!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 10:22:54 / Þóra Karítas

Að dreyma fyrir góðu

Dreymdi að ég hefði tekið á móti lítilli stelpu í nótt. Kemur kannski ekki á óvart að mig dreymi fæðingu þar sem að fimm vinkonur mínar eru óléttar. Var þó mikil upplifun enda fæðing aldrei hversdagslegur atburður og athöfnin fram úr hófi myndræn.

Ráðningin fékkst á Draumar.is

Að vera viðstaddur fæðingu þar sem allt gengur vel er fyrir góðu en ef eitthvað fer úrskeiðis eru leiðindi í vændum. Til eru þeir sem segja að draumar um fæðingu séu merki um löngun viðkomandi til að geta lifað lífi sínu að nýju, á annan hátt. Sumum getur fæðing verið táknum eigið ósjálfstæði og löngun til að breyta því. (Draumar.is)

Sem betur fer gekk fæðingin vel í draumnum - svo vel að ég var heppinn að ná að grípa barnið þegar það spýttist út. Svo hreinsaði ég öndunarveginn eins og ég hefði aldrei gert annað og lagði barnið (sem var lítil fullkomin stelpa) að brjósti móðurinnar sem var klædd í karlaskyrtu og bindi (svona eins og sigurvegari Eurovision frá Serbíu). Barnið var mjög rautt og blóðugt í draumnum en mér fannst ég hafa upplifað eitthvað nýtt með því að verða vitni að fæðingu og jafnvel gert gagn. Hmmm... Er þetta merki um að ég ætti að gerast ljósmóðir???

Planið er að drífa sig til London í vikunni til að endurheimta sjálfstæðið og lifa lífinu, jafnvel á annan hátt...

Skemmtið ykkur...


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 11:24:47 / Þóra Karítas

borgin í rúst

Þegar ég keyrði heim úr Eurovision grillpartýi í gær sá ég tröllvaxna konu liggja í sólbaði á þaki Hljómskálans. Ekki nóg með að við komumst aldrei upp úr undankeppni Eurovision þá þurfum við að horfast í augu við það að borgin okkar er í rúst, búið að reka hníf í gegnum strætó, búta hann í tvennt og rústa bílum með grjóti og reka þá í gegnum trjádrumba. Í dag ætla ég að komast í botn í þessu máli.

Hitti Þórdísi Elvu á fundi í gær og við brainstormuðum út í eitt. Svakalega inspirerandi og við höfum það að reglu að hittast í kaffi á fimmtudögum. Ekkert betra en þegar maður brainstormar með fólki þannig að maður veit að lokum ekki hver á hvaða hugmynd. Nú erum við komnar með grunnhugmynd að low budget leiknu sjónvarpsefni sem verður gaman að halda áfram að þróa.

Ætla að listaspírast í dag og sinna samfélagslegum skyldum á morgun ef enn vantar fólk í undirkjörtstjórn.

Svo skilst mér að maður sé ekki maður með konum nema maður kíki á bloggið hennar Ellý Ármanns. Rauðbláu ástarsögurnar ku kynda undir landanum.

Skemmtið ykkur vel á kosningavöku og sé ykkur sumhver í þrítugasta ;)afmæli Sollu :)

Love

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 10:33:25 / Þóra Karítas

Dagurinn í dag

Yesterday is history but today is a gift. That is why they call it the present

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 22:26:10 / Þóra Karítas

Góðverk

Stofnandi ABC hjálparstarfs hringdi í Einar í dag til að biðja hann um að fá myndefnið frá Kenía sem hann tók fyrir Kompás - til afnota.

Stofnandinn var klökkur í símann og sagði að í nítján ára sögu samtakanna hefðu þau aldrei upplifað önnur eins viðbrögð eins og eftir Kompás þáttinn. 150 börn eru búin að eignast styrktarforeldra og fleiri, fleiri milljónir hafa safnast.

Magnað.

Svo gott að fólk sé tilbúð til að hjálpa og finni þörf til að leggja sitt af mörkum. Einn húsgagnaverslunareigandi gaf 7milljónir til samtakanna og ætlar að eyða peningum í birtingar á sjónvarpsauglýsingum fyrir ABC hjálparstarf með myndefninu sem Einar tók.

Ekki hægt annað en að verða fyrir áhrifum því sögurnar voru ekkert smáræði.

Eins og til dæmis litla stelpan fimm ára og bróðir hennar tveggja ára sem höfðu verið handtekin fyrir að betla út á götu. Henni hafði verið nauðgað af hvorki meira né minna en fimm karlmönnum og hún þurfti að fara í sakbendingu með um 50 karlmönnum þar sem hún þurfti að benda á glæpamennina. Sem betur fer voru þeir handteknir.

Eins og til dæmis alnæmissmitaða mamman sem var að biðja Þórunni um að taka að sér börnin hennar þegar hún og eiginmaðurinn hennar féllu frá en hann var líka HIV smitaður. Sú kona býr til skartgripi og ég er búin að ganga með armband og hálsmen sem Einar gaf mér eftir hana og hugsa alltaf til hennar þegar ég handlanga skartgripina hennar. Hún var svo falleg í þættinum með svo blíða áru í fallega flöskugrænum kufli.

Svo var líka átakanlegt að sjá ungu strákana sem sniffa lím og mennina á okkar aldrei sem drekka sig í svefn. Það er einmitt sagt að flestir, þegar þeir gerast heimsforeldrar, styrki stelpur og þess vegna sé meiri þörf á því að strákarnir séu styrktir. Það er eins og fólk sé vissara um að stelpurnar verði ekki vímuefnum og vitleysu að bráð og þess vegna vilji fólk fremur styrkja þær.

http://www.stevebloom.com/pages/slide_africa.html

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 19:36:29 / Þóra Karítas

Frétt dagsins

40 prestar að þrýsta á Þjóðkirkjuna um að samkynhneigðir megi gifta sig.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 02:42:44 / Þóra Karítas

Lífsins ganga

Sumarið fraus saman við veturinn og það veitir á blítt sumar. Farfuglarnir að týnast heim. Rún komin á RUV og Edda á leiðinni í heimsókn.

Fyrsti sumardagur fór í fimm tíma göngu á Móskarðshnjúka. Harpa var traustur leiðsögumaður og lánaði mér brodda til að krafsa í gegnum snjóhrakið á leið á toppinn. Algjör ecstasía að ganga á íslensk fjöll og kynntist frábærri stelpu sem heitir Sara og er í svipuðum sporum og ég, nýkomin heim úr námi og að feta sig á Íslandinu góða. Við eigum vonandi eftir að klífa fleiri fjöll saman í sumar.

Við Harpa, ásamt fleirum úr leiðsögugönguskólanum, gerðum líka tilraun til að fara upp á Hengil en þurftum að snúa við eftir klukkutíma göngu vegna óveðurs. Gerum aðra tilraun fljótlega.

Göngur eru allra meina bót en nú verð ég að fara að drattast til að byrja að hlaupa aftur. Þarf líklega að koma smá skipulagi á lífið þó það sé gott að vera á hótel mömmu og þykjast eiga skilið að vera í fríi. Ef einhver veit um ódýran bíl væri góð byrjun að fjárfesta í einum slíkum.

Er þó að gramsast heilmikið bakvið tjöldin og vonandi kemur eitthvað skemmtilegt út úr því. Lífið virðist vera að taka við og þá falla hlutirnir oft auðveldlega á réttan stað.

Verum í bandi


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 22:23:32 / Þóra Karítas

Lísa í Undralandi og langur pistill eftir langa hvíld

Rómversku böðin í Bath eru æði. Fór þangað í tuttugu stiga hita og sól og leið eins og ég væri á Ítalíu (þó ég hafi aldrei komið þangað) þegar ég buslaði í náttúrulega heita vatninu í gömlu musterisrústum rómverjanna.

Er að tapa mér í Bretasögunni núna og er búin að komast að því að ég er búið að sjá töluvert af landi og þjóð. Elska að ferðast og ef einhvern langar að borga mér fyrir að fara í heimsreisu þá skal ég alveg leggja það á mig að fara í ferðalag í nokkra mánuði.

Varð svo ferðasækin í síðustu Londonferð að ég lét Bath og Stonehenge ekki nægja heldur skellti mér líka til Oxford og Cambridge. Ég þurfti eiginlega að fara til Cambridge til að rifja upp staðarhætti þar sem ég verð með leiðsögumanna/gönguferð um borgina í Júní fyrir hestaóða Íslendinga sem ætla að skoða breska hestaræktun og skella sér á veðreiðar.

Í Cambridge gafst færi á að rifja upp rómantískar gönguferðir um háskólasvæðin en ég var svo heppin að fá fylgd frá áströlskum félaga mínum um svæðið fyrir þremur árum þegar ég var í tungumálaskóla í borginni. Háskólarnir eru ótrúlega fallegir. Risastórir kastalar byggðir í barrokkstíl og leyna svo á sér því þega maður labbar í gegnum hliðin birtast ólýsanlega fallegar graslendur þar sem stúdentar viðra sig í garðinum og dingla sér niður ánna Cam á mjóu trébátunum sem er ýtt áfram með þar til gerðri stöng sem heimamenn eru þrautþjálfaðir í að stýra. Innviði skólabygginganna eru svo eins og mötuneytið í Harry Potter skólanum og íðilfagrar kapellur fylgja hverjum skóla.

Ég sá það alveg í hillingum að komast inn í University of Cambridge og leggja stund á enskar bókmenntir. Gott að eiga eitthvað djúsí eftir. Annars gæti ég nú alveg lært þar guðfræði líka eða bara hvað sem er.

Oxford varð ég svo að koma til bara af því að ég hef aldrei komið þangað. Komst að því í skoðunarferðinni minni að Lísa í Undralandi fæddist í Oxford. Pabbi stelpunnar Lísu sem var fyrirmyndin af stelpunni í ævintýrinu var skólastjóri við einn af skólunum í Oxford og þar ská á móti er að finna litla fallega búð þar sem hægt er að fá allt sem tengist Lísu í Undralandi.

Svo tapaði ég mér í búðum sem var æði. Er að fara að endurlífga skvísuna í mér þar sem að það er komið vor og engin ástæða til annars en að skarta sínu fegursta eins og blómin.

Er þá búin að fá nokkuð gott yfirlit yfir Bretland. Á síðustu þremur árum er ég búin að koma til Bath, Stonehenge, Stratford upon Avon, Cambridge, York, Manchester, Bristol, Brighton og svo Edinborgar svo ég held það megi teljast frekar gott. Dettur reyndar í hug að ég á eftir að koma til Liverpool og New Castle svo eitthvað sé nefnt.

Er svo í Reykjavíkinni í svona rúma viku núna og fer aftur til London en þar verð ég með skoðunarferð um miðbæinn 29. apríl í leikhúsferð á vegum Borgarleikhússins. Aldrei að vita hvað verður um mann eftir það. Freistandi að eyða sumrinu með Ásu, Siggó og Gunnhildi í Barons Court og sleikja sólina og safann úr London í sumar en ætli maður verði ekki bara á flakki enda íslenskar sumarnætur í Reykjavík svolítið ómótstæðilegar.

Fór á tjúttið í gær og fékk forsmekkinn. Hitti sem betur fer sitthvað af vinum og kunningjum en það hefðu verið einstaklega mikil vonbrigði ef ég hefði ekki hitt neinn. Næs að geta verið eins og Norm í Staupasteini þegar maður kíkir út í Reykjavíkinni.

Blessi ykkur í bili : )


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 23:13:45 / Þóra Karítas

London, Bath og Stonehenge

Er að byrja að undirbúa páskaferð til London en ég á að sjá um skoðunarferð um miðborgina og einnig ferð til ensku borgarinnar Bath þar sem við stoppum líka til að skoða "náttúrufyrirbærið" Stonehenge...

Ef einhver lumar á skemmtilegum fróðleik um eitthvað sem tengist Bretlandi, til dæmis skrýtlu eða slúðri af Churchill eða Nelson, drollu, Blair eða Kate Winslet þá endilega deilið því með mér...Allur vísindafróðleikur líka vel þeginn. Alltaf gaman að segja svona: já svo uppgötvuðu bretarnir auðvitað... og hvar værum við ef bretarnir hefðu ekki....???

Kem annars í Sódómuna annað kvöld. Kvíði fyrir og hlakka til. Er orðin rótgróin í sveitinni og finnst orðið erfitt að hugsa til þess að mengunin af malbikinu fari um vit mín andleg sem líkamleg...

Verð í leikhúsinu öll kvöld... (kemur upp í hugann að Hilary Wood aðal leiklistarkennarinn minn sagði að leikarar væru allir á raunveruleikaflótta, ha ekki ég....)

Sjáumst...


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 00:01:21 / Þóra Karítas

Vísindaspeki

 

Einungis líf sem er varið í þjónustu við aðra er þess virði að lifa því.

 

Albert Einstein (f. 14. mars 1879, d. 18. apríl 1955) þýskur eðlisfræðingur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 12:39:09 / Þóra Karítas

Sumarið, framtíðin og Lífið

Þá er búið að klára sýningar á Svörtum Ketti. Naut lokasýningarinnar í botn og er svo búin að vera að hreinsa til í íbúðinni og skipuleggja framtíðina. Siggi Sigurjóns kom úr Reykjavíkinni til að horfa og var hæstánægður með sýninguna en hann verður hér næsta haust að leikstýra Óvitunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Ég rifjaði það upp að ég hefði verið mjög hrædd við hann í hlutverki Flökku Jóa í leikritinu Gosa þegar ég var tveggja ára. En svo brá hann sér niður í bæ og ég frétti daginn eftir að hann hafi þurft að flýja af hólmi þegar allir vildu ólmir að hann léki Ragnar Reykáss fyrir fólk á skemmtistöðum bæjarins...

En ég er sem sagt komin með gróft framtíðarplan ársins 2007:

Getur verið að ég verði með annan fótinn hér á Akureyri næsta vetur en leikhússtjórinn hefur boðað mig á fund á morgun. Sjáum hvað kemur út úr því.

Svo er ég að fara til London 4.-8. apríl sem fararstjóri í páskaferð. Þá fæ ég frí hér sem sýningarstjóri í Lífinu-notkunarreglur en kem aftur til að vera út apríl hér á Eyrinni.

Um Lífið-notkunarreglur:

Á mánudaginn kemur hljómsveitin í hús og verður spennandi að heyra söngvana hans Megasar hljóma í útsetningum Möggu Stínu. Leikritið að verða ansi spennandi. Ef að það er hægt að flokka verkið eða sýninguna undir einhvern stíl þá myndi það flokkast undir leikhús fáranleikans eða absúrdisma og nú er unnið að því að skapa skemmtilega undarlegan heim sem áhorfendum þykir vonandi gaman að stíga inn í. Það tók svolítinn tíma fyrir mig að kynnast verkinu því það er svo ólíkt svo mörgu sem maður hefur lesið en núna stíga alltaf upp ný og ný orð og setningar upp úr ýmist lagatextunum eða verkinu sjálfu sem höfða til mín með ólíkum hætti. Svona eins og að hlusta á uppáhaldstónlistarmanninn sinn og finnast alltaf einhver ný og ný lína tala til manns og segja manni eitthvað um sjálfan sig eða lífið.

Meira um framtíðina:

Svo getur verið að það verði aftur ferð til London í lok apríl. Leikhúsferð á vegum Borgarleikhússins og þá er aldrei að vita nema ég verði bara eftir í London og finni mér einhverja skemmtilega vinnu þar út sumarið auk Express vinnunnar. En ég verð samt eiginlega að koma til Íslands aftur 15. maí til að vera á listahátíð því einn bekkjarfélagi minn frá London er að leika í Shakespeare sýningunni Cymbeline og ómögulegt að vera úti þegar hann kemur hingað. Stefnan er líka að nota sumarið til að ferðast. Er boðið til Möltu í brúðkaup í lok Júní hjá fyrrum bekkjarfélaga og vonandi verður svolítið Webber Douglas reunion þar.

Sem sagt áætlanir að skýrast og gaman að vera til.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 23:50:12 / Þóra Karítas

Algjör frelsun

 

Fór út á videoleigu til að skila dvd.

Melinda & Melinda eftir Woody Allen

Ákvað að fara í 10-11. Hringdi fyrst í skáldið út af praktískum málum. Fannst ég skulda símtal en hann var búinn að gleyma út af hverju hann hafði beðið mig að hringja.

Gekk inn í 10-11 sá myndlistarmanninn

Pylsurnar búnar og bananarnir mygla fyrr á Akureyri 

Út á tröppum sagði rithöfundurinn mér að ég ætti að skrifa allt sem kæmi upp en aldrei fá hugmyndir.

Að ég ætti að labba út á daginn án þess að vita hvar ég ætlaði að enda

Hugmyndalistinn sem ég er búinn að vera að rogast með upp Listagilið undanfarnar þrjár vikur breyttist í bleik flugfljúgandi fiðrildi.

Ég má gera hvað sem er. Þarf ekki að vera neitt. Sleppi þeim öllum í burtu og veit þau rata án mín.

Ranka við mér í núinu. Sé lækinn hlykkjast niður götuna í vatnaleysingunum og kíki inn á milli bakgarðanna þar sem snjóenglarnir bráðna. Um daginn sá ég líka glitta í demtantasteina þegar frostir þóttist vera dýrmætt.

Hverjum er ekki sama hver gerir hvað svo lengi sem allir fá að gera eitthvað?


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 13:56:14 / Þóra Karítas

Frústrasjón og stemmari

Rosa gaman á Killer Joe frumsýningunni á fimmtudaginn og gott að kíkja aðeins til Reykjavíkur. Unnur Ösp og Bjössi Thors eru alveg að brillera í þessari sýningu svo allir þurfa að drífa sig í leikhúsið. Hitti Mariko sætu og Árna sæta : ) á frumsýningunni svo þetta var allt saman hið gleðilegasta en fattaði ekki að allt lokaði niður í bæ klukkan eitt og missti því alveg af miðbæjarsollinum. Var alveg brjálaðslega frústreruð yfir því að það væru engir einhleypir gæjar á svæðinu til að blikka. "Og hvers vegna kemur enginn að draga oss á tálar?" (tilvitnun lýkur):lol:

Er því komin aftur norður til að halda áfram að pipra í bili og ekki hefur sést til dökkhærða krullhærða mannsins, 187cm á hæð, sem að spákonan lýsti fyrir mér að myndi sigla til mín á vordögunum. Auglýsi hér með eftir honum og bið vinkonurnar að hafa augun opin og spyrja alla sem eru dökkhærðir og einhleypir hvað þeir séu háir : ) 

Annars sagði mér líka spákonan að ég myndi svissa um starfsgrein núna, að ég færi jafnvel í eitthvað lögfræðitengt og að ég ætti að skrifa og skrifa og skrifa. Svo sagði hún að það hentaði mér best að vera í skóla og að ég hefði þörf fyrir að bjarga heiminum. Enda er ég enn að obsessa um hjálparstarfið og spennt að heyra ferðasögu Einars bróður en hann er að fara á slóðir ABC hjálparstarfs í Kenýa á mánudaginn.

Var rosa stemning á Svörtum Ketti í gær. Var svona eins og einhver hláturhystería væri í gangi og fólk var stundum byrjað að hlæja áður en leikararnir gengu á svið. "Sumir" leikarar áttu erfitt með að springa ekki bara líka úr hlátri. Bara tvær sýningar eftir, ein í kvöld og svo lokasýning á föstudaginn eftir viku. Vona að það verði stemmari!

Stefni svo á að koma til Reykjavíkur eftir tvær vikur og fara í leikhúsið og sjá tvö til þrjú leikrit. Söngleikurinn Leg, Eilíf Hamingja, Dagur Vonar og Draumalandið eru öll á óskalistanum. Missi því miður af Ó fagra veröld í leikstjórn Benna Erlings en ótrúlega margir hafa verið að mæla með þeirri sýningu. Ef einhver er leikhúsþyrstur þá um að gera að slást í hópinn eftir tvær vikur og hei ef þú ert dökkhærður með krullur þá gleður mig einstaklega mikið að kynnast þér :lol:

Lots of love to you all :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3